
Sturla Kristjánsson,
sálfræðingur M.Ed.
er stofnandi og eigandi LES.IS

Sturla er kennari með löggildingu sem sálfræðingur á Íslandi og í Danmörku. Hann hefur alþjóðleg réttindi sem
Davis® rágjafi (Davis® Facilitator) og hefur starfað sem Davis® námstækniráðgjafi (DLS School Mentor) og Davis® námstæknikennari
(DLS Workshop Presenter).
Einnig hefur hann alþjóðleg réttindi til að stunda dáleiðslu og dáleiðslumeðferð.
Sturla hefur áratuga reynslu af uppeldis- og skólamálum sem kennari, námsráðgjafi,sálfræðingur, forvarnafulltrúi,
skólastjóri og fræðslustjóri.
Sturla leitar nýrra leiða við greiningar og meðferð sértækra námsörðugleika. Þjónustan beinist að jákvæðum,
sterkum þáttum og styrkingu sjálfsmyndar.
Sturla hefur stundað öflugt sjálfsnám um árabil og einbeitt sér að málefnum bráðgerra barna, barna með athyglisbrest/ athyglisbrest
með ofvirkni, (ADD/ADHD), og lesblindra.
Hann hefur sótt í smiðju þeirra, sem telja að sértæk vandamál í skóla megi helst rekja til einhæfra aðferða sem ekki taka
nægilegt tillit til mismunandi þarfa nemenda og námsstíls.
Illt er að sá á klöpp, -
finnið frjósama spildu og sjáið árangur.
Nokkrir áhugaverðir höfundar sem þú getur fundið á vefnum:
Thomas Armstrong
Peter R.
Breggin
Jeffrey Freed og Laurie
Parsons
Thom
Hartmann
Linda Kreger
Silverman
Stephanie S.
Tolan
Sjá einnigwww.dyslexia.com/bookstore/



